|
Skrifað af: Administrator
|
|
Þriðjudagur, 08. maí 2012 15:57 |
|
Nú fer í hönd sá tími sem nemendur eru hvað uppteknastir í skólanum. Vortónleikar eru á næsta leiti og allir á fullu að æfa sig. Vonandi. Vortónleikarnir verða í Grunnskólanum á Stöðvarfirði þriðjudaginn 22. maí og í Skólamiðstöðinni á Fáskrúðsfirði miðvikudaginn 23. maí. Báðir tónleikarninr hefjast kl. 18:00.
Generalprufa fyrir tónleikana verður kl. 15:00 sama dag. |
|
Síðast uppfært: Þriðjudagur, 08. maí 2012 16:01 |
|
|
Skrifað af: Administrator
|
|
Þriðjudagur, 20. mars 2012 08:51 |
|
Á dögunum var Uppskeruhátíð tónlistarskólanna haldin hátíðleg. Fyrst var forval í skólunum þar sem valið var atriði til að keppa fyrir hönd síns skóla, svo var svæðisbundin keppni og lokakeppni var síðan haldin í Hörpunni í Reykjavík um síðustu helgi.
Svæðiskeppnin fór fram í Ketilhúsinu á Akureyri. Reyndar átti keppnin upphaflega að fara fram í menningarhúsinu Hofi en því miður var keppnin færð í Ketilhúsið. Það voru mikil vonbrigði hjá keppendum að geta ekki flutt sína tónlist í þessu glæsilega húsi. Ástæðan fyrir því að keppnin gat ekki farið fram í Hofi er fyrst og fremst vegna
þess að Akureyrarbær gat ekki séð sóma sinn í því að tryggja keppninni húsið. Þess má geta að tónlistarhúsið Harpa bauð lokakeppnina velkomna til sín - án endurgjalds. Mættu Akureyringar taka það til fyrirmyndar, því Hof var, eins og Harpa, byggð fyrir almannafé til að sinna hlutverki menningarhúss. En nóg um það.
Fyrir hönd tónlistarskóla Fáskrúðsfjarðar og Stöðvarfjarðar kepptu fjórir drengir. Það voru þeir Guðmundur Arnþór Hreinsson, Sólmundur Aron Björgólfsson, Viktor Breki Þorvaldsson og Friðrik Júlíus Jósefsson. Þeir skipuðu hópinn The Snooze Brothers. Þeir fluttu gítartvennu í útsetningu Garðars Harðar kennara þeirra.
Það er skemmst frá því að segja að drengirnir stóðu sig með prýði og var mjög erfitt fyrir dómnefndina að velja á milli atriða. Það fór þó svo að Seyðfirðingar urðu hlutskarpastir í samleiksflokki. Þeir voru vel að sigrinum komnir, en í raun hefði hvaða atriði sem er getað verið valið. Slík voru gæðin.
Lokakeppnin fór svo fram sunnudaginn 18. mars í Hörpu.
|
|
Síðast uppfært: Þriðjudagur, 20. mars 2012 11:14 |
|
Skrifað af: Administrator
|
|
Fimmtudagur, 15. desember 2011 14:36 |
|
Nú eru að baki frábærir jólatónleikar hjá Tónlistarskólanum. Nemendur hafa unnið hörðum höndum að því að undirbúa sig sem best fyrir tónleikana og skilaði það sér í frábærri dagskrá og góðum tónleikum. Áhorfendur voru hæstánægðir með frammistöðu nemenda og ekki eru kennararnir síður ánægðir með sitt fólk. |
|
Síðast uppfært: Þriðjudagur, 31. janúar 2012 13:56 |
|
|
Heimsókn frá leikskólanum Kærabæ |
|
|
|
|
Þriðjudagur, 14. febrúar 2012 11:10 |
|

Tónlistarskólinn hefur fengið skemmtilega gesti í heimsókn undanfarið. Nemendur úr leikskólanum Kærabæ. Glæsilegur hópur barna þaðan hefur fengið að skoða hljóðfæri tónlistarskólans og prófa nokkur. Börnin hafa sýnt hljóðfærunum mikinn áhuga og spurt um þau og dáðst að þeim. Enda fátt fallegra en falleg hljóðfæri. Þau hafa fengið að kynnast fiðlu, gítar, trompet, básúnu, þverflautu, blokkflautu, píanói, rafbassa og síðast en ekki síst fengið að prófa trommusett tónlistarskólans. Það þótti þeim nú ekki leiðinlegt.
Takk fyrir komuna krakkar! |
|
Síðast uppfært: Þriðjudagur, 21. febrúar 2012 11:02 |
|
Skrifað af: Administrator
|
|
Fimmtudagur, 25. ágúst 2011 13:31 |
|

Nú í sumar kom Caroline Dumas til Fáskrúðsfjarðar og var viðstödd Franska daga á Fáskrúðsfirði. Við það tækifæri hitti hún skólastjóra Tónlistarskólans og færði skólanum nokkra hljómdiska og kennsludiska til að nota við tónlistarkennslu í Tónlistarskólanum.
Henni eru færðar góðar þakkir og mun gjöfin örugglega skila sér starfinu. |
|
Síðast uppfært: Þriðjudagur, 21. febrúar 2012 11:04 |
|
|
|
|
|
|
Síða 1 af 6 |